Fannst við miklu betri en þeir

Jón Gísli í leiknum í kvöld.
Jón Gísli í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson

Jón Gísli Ey­land Gísla­son var svekkt­ur er hann ræddi við mbl.is í kvöld, enda ný­bú­inn að tapa fyr­ir FH, 3:1, með liðsfé­lög­um sín­um í ÍA í Bestu deild­inni í fót­bolta á Akra­nesi.

„Þeir kom­ast í þessi tvö færi sem þeir skora úr. Þetta voru soft mörk sem við fáum á okk­ur. Við eig­um að gera bet­ur.

„Mér fannst við miklu betri en þeir. Þeir fengu ekki mörg færi en þeir refsuðu okk­ur. Við hefðum átt að klára okk­ar færi bet­ur. Við þurf­um að vera ró­legri á síðasta þriðjungi og skora úr þess­um fær­um sem við fáum,“ sagði hann um leik­inn.

ÍA er aðeins með tvo sigra í fyrstu sjö um­ferðunum og er fyr­ir vikið í fallsæti.

„And­rúms­loftið var þungt en það þýðir ekki að hengja haus. Það er lítið búið af mót­inu og við verðum að halda áfram. Við mæt­um á æf­ingu á morg­un og reyn­um að laga það sem laga þarf,“ sagði Jón Gísli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert