Stjarnan og Víkingur skildu jöfn, 2:2, í hörkuleik í Bestu deild karla í knattspyrnu í Garðabænum í kvöld.
Víkingur situr í öðru sæti deildarinnar með 14 stig en Stjarnan er í fimmta sæti með 10 stig.
Víkingur hóf viðureignina af krafti og fékk Stígur Diljan Þórðarson gott færi til að koma liðinu yfir á sjöundu mínútu. Gylfi Þór Sigurðsson átti stórkostlega fyrirgjöf beint á kollinn á Stígi en Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnunnar, varði skalla hans.
Víkingar héldu áfram að vera með góða stjórn á leiknum og átti Stjarnan í erfiðleikum með að spila í gegnum fyrstu pressu þeirra.
Fyrsta marktilraun Stjörnunnar kom á 25. mínútu þegar skot Benedikts Warén af löngu færi hafnaði í stönginni.
Víkingur náði forystunni á 30. mínútu eftir þrumuskot frá Daníel Hafsteinssyni. Boltinn datt fyrir Daníel rétt utan teigs í kjölfar hornspyrnu sem negldi boltanum í fyrstu snertingu í markið.
Stígur Diljan fékk dauðafæri rétt fyrir hálfleik til að tvöfalda forystu Víkinga. Oliver Ekroth átti gott skot eftir hornspyrnu sem Árni Snær varði vel. Stígur var fyrstur á frákastið en skot hans úr markteignum endaði í stönginni.
Staðan í hálfleik var 1:0 fyrir Víkingi.
Á 63. mínútu fékk Emil Atlason gott færi til að jafna metin eftir góða sendingu frá Örvari Loga Örvarssyni en Ingvar Jónsson varði stórkostlega.
Jöfnunarmark Stjörnunnar kom aðeins sjö mínútum síðar. Guðmundur Baldvin Nökkvason fann Emil inn fyrir sem skoraði af öryggi framhjá Ingvari í marki Víkinga.
Örvar Eggertsson kom Stjörnunni yfir á 74. mínútu. Það kom eftir góða fyrirgjöf Benedikt Warén frá vinstri og reis Örvar manna hæstur í teignum og skallaði boltann í netið.
Víkingar voru ekki lengi að svara fyrir sig en á 82. mínútu jafnaði Nikolaj Hansen metin. Sveinn Gísli Þorkelsson átti skot eftir mikinn darraðardans sem Örvar Logi bjargaði á línu. Boltinn hrökk fyrir Hansen í markteignum sem náði að ýta boltanum yfir línuna.
Emil fékk frábært færi til að skora sigurmark Stjörnunnar í uppbótartíma eftir góða sendingu fyrir markið frá Örvari Eggertssyni en skot hans endaði yfir markinu.
Lokaniðurstaða var því 2:2-jafntefli.