Afturelding vann glæsilegan sigur á KR, 4:3, í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudaginn var. KR komst í 2:0 og 3:2 en Afturelding neitaði að gefast upp.
Að lokum skoraði Hrannar Snær Magnússon sigurmark Aftureldingar, þremur mínútum eftir að Aron Elí Sævarsson jafnaði í 3:3.
Markaveisluna má sjá hér fyrir neðan.