KA lyfti sér úr botnsæti Bestu deildar karla með því að leggja nýliða Aftureldingar 1:0 í 8. umferð deildarinnar á Akureyri í dag. Lið KA er nú með 8 stig í 10. sæti en Afturelding er þremur sætum ofar með 10 stig.
Þegar leikurinn hófst þá hafði KA ekki skorað mark í deildinni í 277 mínútur og Afturelding hafði ekki skorað mark á útivelli í sumar. Það mátti því alveg eins búast við markaskorti í leiknum.
Fyrri hálfleikurinn var með daufasta móti og ekki fékkst mark í honum. Hvort lið reyndi að spila og skapa sér færi en það gekk erfiðlega. Nokkur skot fengu að fljúga á markið en flest þeirra misstu illilega marks. Báðir markverðirnir höfðu það því náðugt.
KA-menn sóttu aðallega upp vinstra megin og þeir voru sterkari í fyrri hálfleik. Birgir Baldvinsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson voru þar í aðalhlutverki. Mest áberandi Mosfellinga var Þórður Gunnar Hafþórsson á hægri kantinum.
Seinni hálfleikurinn var nánast eins og sá fyrri nema hvað KA-menn voru miklu áræðnari og norðanmenn reyndu hvað þeir gátu að koma inn marki. Gestirnir gerðu sér að góðu að liggja aftarlega og verjast.
KA skoraði loks gull af marki eftir rúmar 350 mínútur af markaþurrð. Hallgrímur Mar Steingrímsson klíndi boltanum upp í skeytin vinstra megin við mikinn fögnuð KA-manna.
Lauk leiknum 1:0 án þess að gestirnir gerðu sig líklega til að jafna. Reyndar átti Georg Bjarnason skalla í slá. Jóan Símún Edmundsson fékk svo frábært færi undir lokin til að gulltryggja sigur KA þegar hann komst einn í gegn. Skot hans hafnaði í stönginni.
Skömmu síðar var flautað af og heimamenn gátu fagnað sigri.