Aron Sigurðarson skoraði tvö glæsimörk fyrir KR þegar liðið tapaði 2:3 fyrir Fram á Þróttarvelli, tímabundnum heimavelli Vesturbæinga, í 8. umferð Bestu deildarinnar í fótbolta í gærkvöldi.
Einu sinni sem áður var því mikið skorað í leik hjá KR í sumar.
Svíinn Jakob Byström, sem á íslenska ömmu, kom Frömurum yfir snemma leiks með skoti af stuttu færi í sínum fyrsta leik fyrir liðið.
Aron jafnaði svo metin með stórkostlegu skoti beint úr aukaspyrnu sem fór í stöngina og inn.
Byström skoraði svo aftur, að þessu sinni með glæsilegum skalla eftir frábæra fyrirgjöf landa síns Simon Tibbling af hægri kantinum.
Vuk Oskar Dimitrijevic kom Fram svo í 3:1 eftir laglega stungusendingu Tibblings áður en Aron minnkaði muninn með þrumuskoti fyrir utan vítateig.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér: