„Við vorum alltaf tilbúin,“ sagði Ólafur Helgi Kristjánsson í samtali við mbl.is eftir 4:0 sigur á FHL í sjöundu umferð Besu deildar kvenna í fótbolta í dag.
„Mér fannst það standa upp úr hvernig liðið kom inn í leikinn alveg frá fyrstu mínútu einhvernveginn og mikil einbeiting og tókum völd við það sem við gerðum sóknarlega og varnarlega með tilliti við hvernig við spilum,” svaraði Ólafur um hvað stóð upp úr leiknum.
„Við getum alltaf fengið á okkur skyndisóknir en við gerðum vel og vorum alltaf tilbúin. Vorum með góða nýtingu á færum, góða spilamesnnsku og börðumst gegn liði sem spilar góða vörn,“ sagði Ólafur um það helsta frá Þrótti í dag og á tímabilinu.
Þróttur Reykjavík er taplaust eftir fyrstu 7 umferðirnar með 19. Stig á toppi deildarinnar.
„Það er hættulegt þegar þú ert í svona toppbaráttu að horfa fram í tímann og sjá endamörkin þegar verkefnið er ekki hálfnað. Þannig að ég er búinn að segja að við horfum bara á næsta leik og einn í einu svo liðið getur tikkað áfram. Þetta er spurning um hvern leik og þegar það gengur vel gefur það liðinu sjálfstraust,“ svaraði Ólafur um tímabilið til þessa.