Þróttur og Haukar í efstu sætunum

Þróttur úr Vogum er á toppnum en myndin var tekin …
Þróttur úr Vogum er á toppnum en myndin var tekin fyrir leikinn gegn KFG. Ljósmynd/Þróttur

Þrótt­ur úr Vog­um og Hauk­ar eru ósigruð lið á toppi 2. deild­ar karla í knatt­spyrnu eft­ir 4. um­ferðina sem lauk í gær.

Þrótt­ar­ar lögðu KFG úr Garðabæ, 2:1, og hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína, eru með 12 stig í efsta sæt­inu. 

Bóas Heim­is­son kom KFG yfir í fyrri hálfleik en Rún­ar Ingi Ey­steins­son og Auðun Gauti Auðuns­son svöruðu fyr­ir Þrótt í þeim síðari.

Hauk­ar lögðu KFA, 2:1, á Ásvöll­um og Aust­f­irðing­arn­ir töpuðu þar sín­um fyrsta leik. Daði Snær Inga­son og Ei­rík­ur Örn Beck komu Hauk­um í 2:0 áður en Pat­rek­ur Aron Grét­ars­son svaraði fyr­ir KFA.

Hauk­ar eru með tíu stig í öðru sæti en KFA er með sjö stig í þriðja sæt­inu.

Ægir vann góðan útisig­ur á Vík­ingi í Ólafs­vík, 4:3, þrátt fyr­ir að Óls­ar­ar kæm­ust í 2:0 snemma leiks. Jor­d­an Adeyemo skoraði tvö mörk fyr­ir Ægi, Daní­el Karl Þrast­ar­son og Dimitrije Cokic eitt hvor en Kwame Quee, Luis Romero og Ivan López skoruðu mörk Ólafs­vík­inga.

Ægir er í kom­inn í fjórða sætið með sjö stig en Vík­ing­ar duttu niður í sjö­unda sæti með fimm stig.

Grótta vann Dal­vík/​Reyni, 2:0, í upp­gjöri liðanna sem féllu úr 1. deild­inni síðasta haust á Seltjarn­ar­nesi. Kristó­fer Dan Þórðar­son og Valdi­mar Daði Sæv­ars­son skoruðu mörk­in.

Grótta er með sjö stig í fimmta sæti en Dal­vík/​Reyn­ir er með fjög­ur stig í átt­unda sæti.

Víðir gerði góða ferð aust­ur á Fljóts­dals­hérað og vann Hött/​Hug­in 3:1 á Fella­velli. Bjarki Fann­ar Helga­son kom Hetti/​Hug­in yfir í byrj­un leiks en Al­ex­is Al­ex­andrenne, Cristovao Mart­ins og Har­ald­ur Smári Inga­son svöruðu fyr­ir Víði.

Víðir er þá með fjög­ur stig í ní­unda sæti en Hött­ur/​Hug­inn er ásamt KFG á botn­in­um með eitt stig.

Kor­mák­ur/​Hvöt lagði Kára, 1:0, á Blönduósi og þar skoraði Gor­an Pot­koz­arac sig­ur­markið strax á sjö­undu mín­útu.

Kor­mák­ur/​Hvöt er með sex stig í sjötta sæti en Kári er með þrjú stig í tí­unda sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert