HK jafnaði ÍBV að stigum – sigurmark undir blálokin

Skagakonur sækja að Huldu Ösp Ágústsdóttur sem er með boltann …
Skagakonur sækja að Huldu Ösp Ágústsdóttur sem er með boltann í kvöld. mbl.is/Eyþór

HK er búið að jafna ÍBV að stig­um í topp­sæti 1. deild­ar kvenna í knatt­spyrnu eft­ir sig­ur á Kefla­vík, 1:0, í fimmtu um­ferðinni í Kefla­vík í kvöld. 

HK er með tólf stig í öðru sæti, jafn­mörg og ÍBV en verri marka­tölu. Kefla­vík er í átt­unda og ní­unda sæti með ÍA en liðin eru bæði með fimm stig og sömu marka­tölu. 

Sig­ur­mark HK skoraði Val­gerður Lilja Arn­ars­dótt­ir á 83. mín­útu leiks­ins. 

Sig­ur­mark und­ir blá­lok­in

Grótta vann ÍA á drama­tísk­an hátt, 2:1, á Seltjarn­ar­nesi. Með sigr­in­um fór Grótta yfir ÍA og alla leið upp í fimmta sæti deild­ar­inn­ar með sex stig. 

El­iza­beth Bu­eckers kom ÍA yfir á fjórðu mín­útu leiks­ins en Hulda Ösp Ágústs­dótt­ir jafnaði met­in fyr­ir Gróttu á 67. mín­útu, 1:1. 

Sig­ur­markið skoraði síðan Re­bekka Sif Brynj­ars­dótt­ir úr víta­spyrnu á þriðju mín­útu upp­bót­ar­tíma seinni hálfleiks­ins. 

Suður­nesjaliðið á góðu skriði

Grinda­vík/​Njarðvík vann þá góðan útisig­ur á Hauk­um, 2:1, á Ásvöll­um. 

Grinda­vík/​Njarðvík er í þriðja sæti með tíu stig en Hauka­kon­ur eru í sjö­unda með sex. 

Elín Björg Norðfjörð Sím­on­ar­dótt­ir kom Hauk­um yfir í fyrri hálfleik en Brookelynn Entz skoraði tvö mörk með fimm mín­útna milli­bili í seinni hálfleik og tryggði gestaliðinu sig­ur­inn. 

KR sann­fær­andi

KR er komið með tíu stig í fjórða sæti eft­ir sig­ur á Fylki, 3:1, í Vest­ur­bæn­um. 

Katla Guðmunds­dótt­ir skoraði tvö mörk fyr­ir KR og Rakel Grét­ars­dótt­ir hitt. Hjá Fylki skoraði Emma Björt Arn­ars­dótt­ir á 83. mín­útu í stöðunni 3:0 fyr­ir KR. 

Fylk­ir er í sjötta sæti með sex stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka