„Þeir skoruðu tvö og við ekkert,“ sagði svekktur Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar í samtali við mbl.is eftir tap fyrir Val, 2:0, á heimavelli í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í dag.
Mosfellingar voru mun sterkari aðilinn framan af og fór stór hluti fyrsta hálftíma leiksins fram á vallarhelmingi Vals. Leikurinn breyttist svo þegar Valur skoraði tvö mörk seinni hluta fyrri hálfleiks.
„Við fengum fínar stöður og ágætis færi en náðum ekki að setja boltann í netið. Þeir skora svo tvö mörk. Að öðru leyti ógnuðu þeir markinu okkar lítið og þetta er svekkjandi niðurstaða.
Mér fannst spilamennskan góð. Ég er ánægður með svarið frá síðasta leik, þar sem við vorum ekki góðir. Ég held allir geti verið sammála því að fyrsta markið kemur gegn gangi leiksins. Mörk breyta leikjum. Þeir skoruðu og við ekki.“
Fyrra mark Vals kom úr víti á meðan Afturelding vildi oftar en einu sinni fá víti hinum megin.
„Við erum ósáttir. Við fáum stóra dóma á móti okkur í dag að mínu mati. Það fór ekki með leikinn. Auðvitað má ræða þátt dómaranna en það mega aðrir gera það,“ sagði Magnús.
Afturelding er í 11. sæti, fallsæti, eftir leikinn en Magnús er ekki að stressa sig á því eftir níu umferðir.
„Fyrsti hálftíminn var með því betra sem við höfum sýnt í sumar. Það eru níu leikir búnir af 27. Við skoðum hvernig þetta verður seint í október,“ sagði Magnús Már.