Rúnar Már Sigurjónsson, fyrirliði ÍA, var ánægður með stórsigurinn á Íslandsmeisturum Breiðabliks, 4:1, í níundu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta á Kópavogsvelli í dag.
ÍA er með þrjá sigra og sex töp eftir fyrstu níu leikina en liðið hafði tapað þremur leikjum í röð. Liðið er þó enn í botnsæti deildarinnar í þessari gríðarlega jöfnu deild.
„Þetta var virkilega verðskuldaður sigur. Það hefur verið stígandi í þessu hjá okkur og hélt áfram í dag. Við gerðum þá hluti sem við ætluðum okkur vel. Við hefðum átt að skora miklu fleiri mörk.
Á tímabili í seinni hálfleik fengum við dauðafæri í hverri einustu sókn. Vonandi á framherjinn okkar þessi mörk inni, sérstaklega í næsta leik á sunnudaginn.
Við spiluðum mjög vel og vorum að finna öll svæðin. Allt sem við lögðum upp með var að ganga. Það var mikið sjálfstraust í liðinu og menn létu boltann ganga hratt á milli manna. Við vorum í litlum vandræðum með þá sem var ánægjulegt,“ sagði Rúnar í samtali við mbl.is eftir leik en Skagamenn hefðu hæglega getað skorað mun fleiri mörk.
Skagamenn áttu góðan leik gegn Víkingi í síðustu umferð en töpuðu, 2:1. Þeir breyttu aðeins leikplaninu fyrir leikinn í dag og það heppnaðist mjög vel.
„Víkingur og Breiðablik eru sennilega tvö bestu liðin og spila nokkuð líkt en við breyttum aðeins frá því sem við gerðum gegn Víkingi. Við vissum að þetta yrði aðeins opnari leikur. Þeir eru aðeins beinskeyttari á köntunum og við vitum að með okkar sóknarbakverði getum við sótt hratt á þetta mikla svæði.
Ég sagði við strákana í hringnum fyrir leik að ef við nýtum færin okkar þá vinnum við, og það var raunin.“
Leikmenn og stuðningsmenn Breiðabliks urðu pirraðir eftir að ÍA komst í 2:0 og kom þriðja mark Skagamanna beint eftir pirring Blika. Má segja að smá hiti hafi borist í leikinn.
„Hiti og ekki hiti. Menn voru bara að berjast. Eitt af því sem við lögðum upp með var að berjast. Ef þú mætir hérna og ert ekki tilbúinn að hlaupa, tækla og berjast þá eru þeir það góðir í fótbolta að þeir spila í gegnum þig og valta yfir þig.
Við mættum með baráttuna og vitum að við kunnum fótbolta. Fyrst verða menn að leggja inn vinnuna og síðan kemur hitt.“
ÍA fær ÍBV í heimsókn í hörkuleik á sunnudaginn en liðin fá aðeins tveggja daga hvíld fyrir leikinn.
„Full stutt í hann kannski. Eyjamenn eru búnir að vera flottir og unnu áðan, hörkusigur hjá þeim.
Það verður baráttuleikur á grasi og við verðum tilbúnir í það. Þetta er bara 50/50 leikur eins og margir leikir í þessari deild. Ef þú ert ekki reiðubúinn þá tapar þú leiknum,“ bætti Rúnar Már við.