Menn sem þykjast vera sérfræðingar

Aron Jóhannsson skoraði fyrsta markið í langan tíma í dag.
Aron Jóhannsson skoraði fyrsta markið í langan tíma í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aron Jó­hanns­son skoraði annað mark Vals er liðið sigraði Aft­ur­eld­ingu, 2:0, á úti­velli í Bestu deild­inni í fót­bolta í dag. Val­ur skoraði tvö mörk seinni hluta fyrri hálfleiks og gaf fá færi á sér í seinni hálfleik.

„Við vörðumst vel. Við vit­um að þeir eru erfiðir heim að sækja og eru með gott lið. Við nýtt­um okk­ar tæki­færi þegar þau komu og gáf­um ekki mörg færi á okk­ur hinum meg­in. Þeir voru meira með bolt­ann í seinni hálfleik en við feng­um hættu­legri færi.

„Við viss­um að þegar við vinn­um bolt­ann að það væri stutt leið að mark­inu þeirra. Við fáum sann­gjarnt víti, kom­umst síðan í 2:0 og eft­ir það er þetta bara spurn­ing um að sigla þessu heim. Við liggj­um aft­ar­lega í seinni hálfleik og það var flott hjá okk­ur að gefa fá færi á okk­ur,“ sagði Aron um leik­inn.

Val­ur hélt ekki hreinu í tæpt ár fyr­ir leik­inn gegn ÍBV í síðustu um­ferð en hef­ur nú haldið hreinu tvo leiki í röð.

„Þetta er ekki ein­hver töfra­hnapp­ur sem þú ýtir á og byrj­ar að halda alltaf hreinu. Við erum með fantag­ott lið og þegar við erum til­bún­ir að hlaupa hver fyr­ir ann­an og vinna skíta­vinn­una er erfitt að skora á móti okk­ur. Frederik hafði ekki mikið að gera í mark­inu í dag,“ sagði hann.

Aron var fram­herji stærst­an hluta fer­ils­ins og dug­leg­ur að skora mörk. Markið í dag var það fyrsta í um eitt og hálf ár. Það ang­ar Aron lítið, þar sem hann er kom­inn mun aft­ar á völl­inn.

„Það bögg­ar mig ekki mikið. Menn sem þykj­ast vera sér­fræðing­ar í stúk­unni horfa kannski ekki á leik­ina. Ég er orðinn djúp­ur miðjumaður og veit ekki til þess að þeir eigi að skora mörk­in. Við erum með góða menn fram á við sem skora hell­ing af þeim,“ sagði Aron.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert