„Manni líður eins og maður hafi tapað og í rauninni töpuðum við tveimur stigum. Þetta var mjög svekkjandi,“ sagði Sveindís Jane Jónsdóttir, markaskorari Íslands í 1:1-jafntefli gegn Noregi í Þjóðadeildinni í knattspyrnu í kvöld, í samtali við RÚV.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari sagði í samtali við RÚV eftir leik að fyrir fram hefði Ísland þegið þessi úrslit. Spurð hvort hún væri sammála því sagði Sveindís Jane:
„Svona já og nei. Við vitum alveg hversu sterkt þetta norska lið er en við viljum auðvitað fara í alla leiki til þess að vinna. Ég hugsaði bara að við myndum taka þrjú stig. Það er mjög svekkjandi að fá á okkur mark í lokin og ná ekki að halda út.“
Hún var sérstaklega ánægð með fyrri hálfleikinn hjá íslenska liðinu en ekki jafn ánægð með þann síðari.
„Mér fannst við koma mjög sterkar til leiks. Við byrjuðum leikinn vel. Við gerðum, það ekki á móti Sviss síðast þannig að við hömruðum svolítið á því að við þyrftum að byrja frá byrjun. Við skorum mjög snemma og höldum svo áfram út allan fyrri hálfleikinn.
Ég veit ekki alveg hvað gerist í seinni. Þær komast vel inn í leikinn, byrja vel og af krafti og henda okkur eiginlega bara niður. Ég veit ekki alveg af hverju þetta fór svona í seinni hálfleik,“ sagði Sveindís Jane.
Ísland fékk fleiri færi til þess að skora og þar á meðal átti hún hættulega hælspyrnu stundarfjórðungi fyrir leikslok sem fór rétt framhjá marki norska liðsins.
„Ég bara hugsaði að ég hefði átt að senda boltann niður, ég veit ekki hvort einhver hafi verið laus niðri því ég leit ekki upp. Ég hefði átt að gera það. Maður skorar nú ekki oft svona mörk þannig að þetta var kannski ekki nógu vel gert,“ sagði Sveindís Jane hreinskilin um færið.