„Það var ótrúlega svekkjandi að fá bara eitt stig úr þessum leik. Mér fannst við eiga skilið þrjú,“ sagði Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Íslands í knattspyrnu, í samtali við RÚV eftir jafntefli gegn Noregi í Þrándheimi í kvöld.
„Mér fannst leikurinn flottur. Mér fannst við vera betri í öllum návígjum og verjast ótrúlega vel. Við vorum að skapa mikið af færum, það vantaði bara að skora fleiri mörk.
Eitt mark á kannski að vera nóg hjá íslenska landsliðinu en það er náttúrlega þægilegra að skora fleiri og geta þá slakað aðeins á,“ sagði Cecilía Rán.
Ísland hefur nú gert fjögur jafntefli í fimm leikjum í A-deild Þjóðadeildarinnar. Spurð hvort hún hefði áhyggjur af því að liðið geti ekki klárað leiki með sigri sagði Cecilía Rán:
„Nei, svo sem ekki. Við höfum bara verið óheppnar með að klára ekki færin okkar en þegar það kemur koma sigrarnir með.“
Hún sagði að sér hefði liðið vel í leiknum og væri ánægð með að hafa spilað reglulega undanfarið ár.
„Mér leið ótrúlega vel í leiknum, ég hefði bara mátt verja í markinu þeirra. Það er gott að vera farin loksins að spila og fá traustið.
Ég er búin að spila nokkra leiki í röð í landsliðinu og farin að venjast því að spila með þessum leikmönnum. Svo er náttúrlega ótrúlega gott að fá Glódísi inn. Það hjálpar mjög mikið og mér líður ótrúlega vel.“