Þriggja marka sigur HK í Keflavík

Arnþór Ari Atlason og félagar í HK unnu þriggja marka …
Arnþór Ari Atlason og félagar í HK unnu þriggja marka sigur í Keflavík í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

HK vann góðan útisig­ur á Kefl­vík­ing­um, 3:0, þegar liðin mætt­ust í fimmtu um­ferð 1. deild­ar karla í knatt­spyrnu á Kefla­vík­ur­velli í kvöld.

Kefl­vík­ing­ur­inn Jó­hann Þór Arn­ars­son var sín­um gömlu fé­lög­um erfiður í kvöld en hann kom HK í 2:0 með mörk­um á 15. og 19. mín­útu leiks­ins.

HK-ing­ar stóðust sókn­arþunga Kefl­vík­inga í síðari hálfleikn­um og und­ir lok­in skoraði Tumi Þor­vars­son og inn­siglaði sig­ur Kópa­vogsliðsins.

HK er þar með komið með 8 stig og lyfti sér upp í sjötta sætið. Kefla­vík er með 9 stig og síg­ur úr öðru niður í fimmta sæti í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert