Þróttarar á siglingu - óvænt í Ólafsvík

Þróttur úr Vogum byrjar 2. deildina mjög vel.
Þróttur úr Vogum byrjar 2. deildina mjög vel. Ljósmynd/Þróttur

Þrótt­ur úr Vog­um hélt í dag áfram sig­ur­göngu sinni í 2. deild karla í knatt­spyrnu þegar fimmtu um­ferð deild­ar­inn­ar lauk.

Þrótt­ar­ar heim­sóttu KFA aust­ur í Nes­kaupstað þar sem leik­inn var fyrsti deilda­leik­ur­inn á end­ur­byggðum velli. Fyr­ir heima­menn fór vígslu­leik­ur­inn ekki vel því Þrótt­ur vann leik­inn 3:0 þar sem Rún­ar Ingi Ey­steins­son skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og Birg­ir Hall­dórs­son það þriðja seint í leikn­um.

Þrótt­ur hef­ur þar með unnið fimm fyrstu leiki sína, er með 15 stig og fimm stiga for­ystu á toppi deild­ar­inn­ar. KFA datt hins veg­ar niður í sjötta sætið með 7 stig.

Ægir komst í annað sætið og varð fyrsta liðið til að vinna Hauka, 2:0 í Þor­láks­höfn. Jor­d­an Adeyemo held­ur áfram að skora, hann gerði bæði mörk Ægis og er kom­inn með sjö mörk í fyrstu fimm um­ferðunum.

Ægir og Hauk­ar eru nú bæði með 10 stig í öðru og þriðja sæti deild­ar­inn­ar.

Óvænt­ustu úr­slit­in urðu í Ólafs­vík þar sem Kor­mák­ur/​Hvöt lagði Vík­ing að velli, 1:0. Gor­an Pot­koz­arac skoraði sig­ur­markið á 70. mín­útu.

Kor­mák­ur/​Hvöt er komið í fjórða sæti með 9 stig en Ólafs­vík­ing­ar eru með 5 stig í átt­unda sæti.

Víðir og Grótta skildu jöfn í Garðinum, 1:1. Dav­id Toro kom Víði yfir und­ir lok fyrri hálfleiks en Björg­vin Brimi Andrés­son jafnaði fyr­ir Gróttu í byrj­un síðari hálfleiks.

Grótta er með 8 stig í fimmta sæti en Víðir er með 5 stig í ní­unda sæti.

KFG fór illa með Hött/​Hug­in, 5:0, í upp­gjöri neðstu liðanna í Garðabæ. Staðan var 4:0 í hálfleik. Kristján Ólafs­son skoraði tvö mörk, Dag­ur Óli Grét­ars­son og Magnús Andri Ólafs­son eitt hvor og eitt var sjálfs­mark.

KFG er þá í 10. sæt­inu með 4 stig en Hött­ur/​Hug­inn sit­ur eft­ir með eitt stig á botn­in­um.

Á fimmtu­dag­inn vann Dal­vík/​Reyn­ir sig­ur á Kára, 2:0, þar sem Migu­el De Freitas og Martim Sequ­eira skoruðu mörk­in. 

Dal­vík/​Reyn­ir er með 7 stig í sjö­unda sæti en Kári er með 3 stig í 11. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert