Áfram hnífjöfn við botn deildarinnar

Barátta í Kaplakrika í dag.
Barátta í Kaplakrika í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

FH tók á móti Aft­ur­eld­ingu í 10. um­ferð bestu deild­ar karla í fót­bolta í Kaplakrika í kvöld og lauk leikn­um með marka­lausu jafn­tefli.

Eft­ir leik­inn eru liðin því bæði með 11 stig og sitja áfram í 10. og 11. sæti deild­ar­inn­ar.

Leik­ur­inn virt­ist ætla að vera skemmti­leg­ur í upp­hafi en annað kom þó á dag­inn. Elm­ar Kári Enes­son skaut að marki FH strax á 4. mín­útu leiks­ins en bolt­inn fór rétt fram hjá. Úlfur Ágúst Björns­son átti fínt færi fyr­ir FH tveim­ur mín­út­um síðar en skot hans var varið af Jökli Andrés­syni í marki Aft­ur­eld­ing­ar.

Eft­ir þetta var eins og það slokknaði á báðum liðum og fóru þau að spila mjög var­kár­an fót­bolta, helst inni á eig­in vall­ar­helm­ingi sem þeir enduðu með löng­um send­ing­um.

Ekk­ert annað markvert gerðist í fyrri hálfleik sem hlýt­ur að telj­ast einn sá allra leiðin­leg­asti á þessu tíma­bili.

Seinni hálfleik­ur virt­ist ætla að verða líf­legri og sóttu Hafn­f­irðing­ar stíft á gesti sína frá Mos­fells­bæ til að byrja með. Eng­in al­vöru færi litu þó dags­ins ljós fram­an af seinni hálfleik.

Á 68. mín­útu leiks­ins komst Kjart­an Kári Hall­dórs­son í frá­bært skot­færi fyr­ir FH en skot hans var glæsi­lega varið af Jökli í marki Aft­ur­eld­ing­ar. Enn betra færi leit dags­ins ljós fjór­um mín­út­um síðar þegar Elm­ar Kári Enes­son Cogic skaut að marki FH en Mat­hi­as Rosenörn varði vel.

Á 89. mín­útu leiks­ins fengu FH-ing­ar auka­spyrnu þrem­ur metr­um fyr­ir utan víta­teig. Kjart­an Kári Hall­dórs­son tók fasta spyrnu í blá­hornið en Jök­ull varði vel í horn.

Fleira markvert gerðist ekki í leikn­um sem lauk með steindauðu marka­lausu jafn­tefli.

FH 0:0 Aft­ur­eld­ing opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert