Hálf öld frá fyrsta leik á Kópavogsvelli

Breiðablik og Víkingur mættust síðast á Kópavogsvelli 30. maí 2024 …
Breiðablik og Víkingur mættust síðast á Kópavogsvelli 30. maí 2024 og þar varð jafntefli, 1:1. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik minn­ist þess að um þess­ar mund­ir er hálf öld liðin síðan Kópa­vogs­völl­ur var tek­inn í notk­un en hann hef­ur verið heima­völl­ur knatt­spyrnuliða fé­lags­ins alla tíð síðan.

Breiðablik mæt­ir Vík­ingi í stór­leik 10. um­ferðar Bestu deild­ar karla í kvöld en stuðnings­mannasíðan Blikar.is fjall­ar ít­ar­lega um hann og seg­ir frá ýms­um skemmti­leg­um staðreynd­um.

Meðal ann­ars kem­ur fram að vígslu­leik­ur Kópa­vogs­vall­ar fyr­ir 50 árum, þann 7. júní 1975, hafi verið gegn Vík­ingi, en reynd­ar hafi það verið Ólafs­vík­ur-Vík­ing­ar sem þar voru á ferð. Breiðablik og Vík­ing­ur Ó. mætt­ust þá í næ­stefstu deild, sem þá hét 2. deild. Um ójafna viður­eign var að ræða því Blikar unnu leik­inn 11:0.

Kópa­vogs­völl­ur var lengi einn besti grasvöll­ur lands­ins, enda upp­hitaður, en skipt var yfir á  gervi­gras fyr­ir nokkr­um árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert