ÍBV hafði betur gegn ÍA, 3:0, í tíundu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á heimavelli ÍA á Akranesi í kvöld.
Þetta var annar sigur Eyjamanna í röð sem eru komnir með 14 stig í sjötta sæti deildarinnar. ÍA er aftur á móti í neðsta sæti með níu.
Alex Freyr Hilmarsson kom ÍBV yfir á 40. mínútu. Þá gaf Vicente Valor sendingu fyrir á Alex sem smellti honum viðstöðulaust á lofti og í nærhornið, 0:1.
Annað mark Eyjamanna var glæsilegt. Þá fékk Sverrir Páll Hjaltested boltinn við miðju, horfði upp og sá að Árni Marinó Einarsson var ekki á línunni. Sverrir lét bara vaða og boltinn hafnaði glæsilega í netinu, 0:2. Eitt af bestu mörkum tímabilsins.
Sverrir Páll bætti síðan við sínu öðru marki á 84. mínútu leiksins. Þá var alls kyns vesen í varnarleik ÍA og boltinn barst til Arnars Breka Gunnarsson hægra megin í teignum. Hann sendi síðan boltann á Sverri sem skaut í fyrsta yfir Árna Marinó og í netið, 0:3.
ÍBV fær Breiðablik í heimsókn eftir landsleikjahléið en ÍA heimsækir Aftureldingu.