Tveimur metrum frá því að vera rangstæður

Daði Berg Jónsson skýtur að marki KR í dag.
Daði Berg Jónsson skýtur að marki KR í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

„Við féll­um of langt til baka,“ sagði svekkt­ur Daði Berg Jóns­son leikmaður Vestra í sam­tali við mbl.is eft­ir 2:1-tap liðsins gegn KR á úti­velli í Bestu deild­inni í fót­bolta í dag.

„Þegar þú ligg­ur svona lengi þá end­ar þetta svona. Þetta var ekki nógu gott. Ég veit ekki hvort það var ein­hver þreyta í okk­ur. Við unn­um ekki okk­ar ná­vígi og þá er okk­ur refsað,“ sagði hann.

Daði skoraði mark Vestra í dag og setti bolt­ann aft­ur í markið í seinni hálfleik en það var dæmt af vegna rang­stöðu. Daði er ekki sátt­ur við þann dóm.

„Ég skoraði og fékk það í eyrað að ég væri tveim­ur metr­um frá því að vera rang­stæður. Þá er staðan 2:0 og leik­ur­inn bú­inn. Við breyt­um því ekki eft­ir á en þetta er súrt,“ sagði hann.

Vestri hef­ur nú tapað þrem­ur leikj­um af síðustu fjór­um en Daði hef­ur ekki áhyggj­ur af stöðunni.

„Við þurf­um að halda áfram að gera það sem hef­ur skilað okk­ur stig­um í pok­ann. Við þurf­um að líta inn á við og mæta klár­ir í næsta leik,“ sagði Daði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert