Háleitt markmið að vinna Frakkland

Íslenski landsliðshópurinn á æfingu í dag.
Íslenski landsliðshópurinn á æfingu í dag. mbl.is/Eyþór Árnason

Gló­dís Perla Viggós­dótt­ir fyr­irliði ís­lenska kvenna­landsliðsins seg­ir það vera há­leitt mark­mið að vinna Frakk­land er liðin mæt­ast á Laug­ar­dals­velli í þjóðadeild­inni á morg­un.

„Já, ég myndi klár­lega segja að það væri há­leitt mark­mið. Það er bara staðan sem við erum í og það er það sem við vit­um að við höf­um í okk­ur.

Ef við náum því allra besta fram úr okk­ur þá höf­um við sýnt að við get­um unnið þessa leiki. Það þýðir að við þurf­um að vera á toppi á öll­um sviðum í leikn­um, hvort sem það er með bolta eða án bolta,“ sagði Gló­dís á blaðamanna­fundi í dag.

Ísland gerði 1:1-jafn­tefli gegn Nor­egi á föstu­dag­inn. Gló­dís seg­ir að liðið geti tekið mikið já­kvætt úr þeirri frammistöðu.

Ég myndi segja fyrst og fremst hug­rekki í press­unni okk­ar. Við vor­um ekki að leyfa þeim að ýta okk­ur alltof neðarlega, sér­stak­lega í fyrri hálfleik. Við þorðum að stíga upp í pressu og vor­um að gera vel við bolt­ann þegar við náðum að spila fram­hjá þeirra pressu.

Það er það sem við þurf­um að gera aft­ur á móti Frakklandi. Fyr­ir fram ger­um við grein fyr­ir því að þær verða meira með bolt­ann og það er allt í góðu. Við þurf­um að nýta þann tíma þegar við erum með bolt­ann, þá þurf­um við að gera vel.

Við þurf­um að vera sterk­ar á bolt­an­um og búa okk­ur til færi, annaðhvort af því að við erum góðar með bolt­ann eða af því að við erum að vinna hann í góðri pressu,” sagði Gló­dís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert