Íslendingum líður vel þarna

Guðný Árnadóttir í keppnistreyju Kristianstad.
Guðný Árnadóttir í keppnistreyju Kristianstad. Ljósmynd/kdff.nu

Landsliðskon­an Guðný Árna­dótt­ir kann vel við sig í Svíþjóð en hún gekk í raðir Íslend­ingaliðsins Kristianstad í mars í fyrra. 

Kristianstad er mik­ill Íslend­ingastaður en Elísa­bet Gunn­ars­dótt­ir þjálfaði kvennaliðið í tæp 15 ár og hef­ur fjöld­inn all­ur af Íslend­ing­um spilað með liðinu og búið í borg­inni. 

Ásamt Guðnýju leika landsliðskon­urn­ar Al­ex­andra Jó­hanns­dótt­ir og Katla Tryggva­dótt­ir einnig með liðinu sem er í fimmta sæti eft­ir níu um­ferðir og aðeins fimm stig­um á eft­ir toppliði Djurgår­d­en í gíf­ur­lega jafnri deild. 

„Deild­in lít­ur ótrú­lega vel út. Það eru mörg góð lið og síðan eru óvænt lið að taka stig af efstu liðum. Við erum bún­ar að vinna liðin tvö sem fyr­ir fram ættu að vera best. Með því sjá­um við að við get­um unnið alla og það er mik­il trú í hópn­um. Við erum spennt­ar fyr­ir fram­hald­inu. 

Eft­ir lands­leikja­hléið eru þrír leik­ir og við verðum að standa okk­ur vel í þeim, síðan kem­ur EM. Eft­ir mótið er þó öll ein­beit­ing aft­ur sett á að standa sig sem best í Svíþjóð,“ sagði Guðný í sam­tali við mbl.is. 

Fullt af Íslend­ing­um á svæðinu

Íslend­inga­hefðin hætt­ir aldrei hjá Kristianstad?

„Nei, svo virðist ekki vera. Stemn­ing­in er mjög góð og það eru fullt af Íslend­ing­um þarna, ekki bara við þrjár í liðinu. 

Þetta er skemmti­legt sam­fé­lag og okk­ur Íslend­ing­um líður vel þarna,“ bætti Guðný við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert