Bikarmeistarar KA sitja hjá í fyrstu umferð Sambandsdeildar karla í fótbolta í næsta mánuði en þetta hefur verið endanlega staðfest.
Ísland hefur hækkað á styrkleikalista evrópskra félagsliða vegna góðs árangurs íslensku liðanna undanfarin ár og það skilar Akureyrarliðinu í þessa stöðu sem bikarmeisturum. Íslenskt lið hefur aldrei áður setið hjá í fyrstu umferð.
Hin tvö íslensku liðin í keppninni, Víkingur og Valur, fara hins vegar í fyrstu umferð keppninnar.
KA verður í neðri styrkleikaflokki en í stórum hópi liða sem Akureyrarliðið getur mætt eru Norðurlandalið eins og Rosenborg, Viking Stavanger, Bröndby og Silkeborg, sem og Rapid Vín, Sparta Prag, Hajduk Split, AEK Aþena, Dundee United og AZ Alkmaar, svo einhver séu nefnd.
Í fyrstu umferðinni verða Víkingar í efri styrkleikaflokki en Valsmenn í neðri styrkleikaflokki.
Mögulegir mótherjar Víkings eru frá Andorra, Hvíta-Rússlandi, Lettlandi, Gíbraltar, Georgíu, San Marínó, Bosníu, Norður-Írlandi, Möltu, Lúxemborg, Norður-Makedóníu, Kósóvó, Finnlandi, Færeyjum, Litáen, Eistlandi, Albaníu og Wales.
Mögulegir mótherjar Vals eru frá Írlandi, Bosníu, Finnlandi, Eistlandi, Færeyjum, Armeníu, Rúmeníu, Norður-Írlandi, Lúxemborg, Albaníu, San Marínó, Svartfjallalandi, Litáaen, Kasakstan, Möltu, Slóveníu, Armeníu, Hvíta-Rússlandi og Georgíu.
Dregið verður til 1. umferðar 17. júní og til 2. umferð sólarhring síðar.