Hlín Eiríksdóttir var svekkt eftir tap íslenska landsliðsins gegn því franska í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. Lokatölur urðu 2:0 en franska liðið skoraði bæði mörkin í seinni hálfleik.
„Okkar leikur er ólíkur þeirra leik. Þær voru meira með boltann og ýttu okkur svolítið aftarlega í seinni hálfleik. Við vörðumst því vel og þær voru ekki að skapa mikið. Við missum svo augnablikið í tveimur atvikum og það er ógeðslega svekkjandi.
Auðvitað aukast líkurnar á að skora ef við erum meira með boltann. Við fengum samt okkar færi og hefðum á góðum degi allavega sett eitt mark. Það var erfitt í seinni hálfleik með vindinn í fanginn og erfitt að reikna boltann. Þetta var samt eins fyrir bæði lið,“ sagði Hlín um leikinn við mbl.is.
Leikurinn var sá fyrsti á nýju grasi á Laugardalsvelli og Hlín sagði völlinn lofa ansi góðu.
„Þetta er ógeðslega gott gras og ég hef aldrei verið á svona góðu grasi á Íslandi. Það var gaman og gott fyrir okkur sem lið að vera komin á svona völl,“ sagði hún.
Ísland hefur nú leikið tíu leiki í röð án þess að vinna. Hlín vill breyta því á lokamóti EM í næsta mánuði.
„Það er ekkert sem við ræðum innan hópsins. Okkur er samt farið að þyrsta í sigur. Við ætlum okkur að ná í sigra á EM,“ sagði Hlín.