Danski sóknarmaðurinn Tobias Thomsen skoraði tvívegis þegar Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu frábæran sigur á Víkingi úr Reykjavík, 3:1, í Bestu deildinni í fótbolta á sunnudagskvöld.
Thomsen hefur farið frábærlega af stað og er kominn með sjö mörk í tíu leikjum í deildinni til þessa.
Síðara mark hans var sérstaklega snyrtilegt en Thomsen vippaði þá yfir Ingvar Jónsson í marki Víkings.
Viktor Örn Margeirsson komst einnig á blað hjá Breiðabliki og Matthías Vilhjálmsson minnkaði muninn fyrir Víking undir lokin.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér: