Fengu samt ekki eitt einasta gula spjald

Ingibjörg svekkt eftir að Frakkar skoruðu annað markið.
Ingibjörg svekkt eftir að Frakkar skoruðu annað markið. mbl.is/Karítas

„Það voru tvö augna­blik þar sem við miss­um ein­beit­ing­una og þá refsa svona góð lið,“ sagði Ingi­björg Sig­urðardótt­ir, varn­ar­maður ís­lenska landsliðsins í fót­bolta, í sam­tali við mbl.is eft­ir tap gegn Frakklandi, 2:0, í Þjóðadeild­inni á Laug­ar­dals­velli í kvöld.

Íslenska liðið fékk fín færi til að skora í fyrri hálfleik en fékk á sig tvö mörk í seinni hálfleik með find­inn í fangið.

„Við feng­um færi til að skora í fyrri hálfleik. Það er erfitt að byrja leik­inn með vindi. Við vilj­um helst byrja á móti vindi. Það var erfitt að verj­ast þeim í seinni en mér fannst það samt ganga vel og við vor­um þétt­ar. Við nýtt­um það ekki nógu vel þegar við vor­um með bolt­ann.“

Ísland hef­ur nú leikið tíu leiki í röð án þess að vinna, en í sex leikj­um í Þjóðadeild­inni gerði liðið fjög­ur jafn­tefli og tapaði tvisvar fyr­ir Frakklandi.

„Auðvitað vill maður vinna og það er pirr­andi að gera öll þessi jafn­tefli. Við vit­um samt að við erum að gera fullt af góðum hlut­um og við treyst­um á okk­ar mark­mið og veg­ferðina þangað,“ sagði hún.

Franska liðið spilaði hægt og albansk­ur dóm­ari leiks­ins var far­inn að ýta á frönsku leik­menn­ina eft­ir nokkr­ar mín­út­ur. Ingi­björg var ekki ánægð með frammistöðu dóm­ar­ans.

„Þær fengu samt ekki eitt ein­asta gula spjald. Mér fannst dóm­ar­inn lé­leg­ur. Það var ekki henni að kenna hvernig fór samt,“ sagði hún.

Næst á dag­skrá hjá ís­lenska liðinu er loka­mót EM í Sviss í næsta mánuði. „Þessi keppni er búin, þriðja sæti í A-deild er ekki svo slæmt. Það er gott að geta farið beint í að ein­beita sér að EM,“ sagði Ingi­björg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert