Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 2:0-tap gegn Frakklandi í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildar kvenna á Laugardalsvelli í kvöld. Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir mætti í viðtal við mbl.is eftir leik.
„Þetta var ekki okkar besta frammistaða svona heilt yfir. En að sama skapi vorum við að spila á móti Frakklandi sem er með heimsklassa leikmenn og voru með leikmenn í dag sem vildu sanna sig fyrir EM.
Við slökkvum á okkur í tvö skipti og þær skora en fyrir utan þessi mörk sköpuðu þær sér ekki neitt. Það er eitthvað sem við getum tekið með okkur, það er að við erum sem lið að verjast vel stóran hluta af leiknum. Það má ekki gerast að við slökkvum svona á okkur,“ sagði Glódís í samtali við mbl.is eftir leik.
Þið eigið góðan fyrri hálfleik í meðvind og fáið hörkufæri, þar á meðal þú þegar þú fylgir eftir aukaspyrnu Karólínu Leu. Var svekkjandi að fara ekki með forystu inn í hálfleikinn?
„Já, ekki spurning af því að við fáum bæði það færi og annað færi stuttu seinna. Auðvitað verðum við að láta þetta detta með okkur til að ná í úrslit og við höfum ekki verið að ná því. Það er auðvitað svekkjandi en það er ekkert sem við getum gert í því nema að halda áfram að æfa okkur og gera okkar besta inni á vellinum.“
Það var hvasst á Laugardalsvelli í kvöld en Glódís segir að ýmislegt hefði mátt fara betur í leik liðsins í kvöld.
„Auðvitað var vindurinn erfiður en við hefðum oftar getað haldið lengur í boltann, bæði í fyrri og seinni hálfleik. Við hefðum líka getað skapað okkur betri færi. Í fyrri hálfleik hefðum við geta skapað enn þá fleiri föst leikatriði af því að við vissum að það væri eitthvað sem þeim myndi líða illa með og henta okkur vel,“ sagði Glódís.
Enginn sigur í Þjóðadeildinni, finnst þér það vera áhyggjuefni fyrir EM í sumar?
„Nei, það eru allir að spyrja að þessu. Þetta er ekkert sem ég var búin að hugsa út í og er að pæla í. Við erum mest að pæla í frammistöðum okkar og heilt yfir í Þjóðadeildinni þá hafa þær verið upp og niður.
Við erum samt að sýna að við erum að taka framförum og við erum að vinna í hlutum sem okkur langar að vera betri í. Við erum að ná því fram í leikjum og við höfum ekki verið að ná í úrslitin samhliða því, því miður. Við treystum á að þetta detti með okkur í leikjunum sem skipta virkilega máli á EM, sagði Glódís að lokum.