Framlengir í Vesturbænum

Stefán Árni Geirsson í leik með KR.
Stefán Árni Geirsson í leik með KR. mbl.is/Óttar Geirsson

Stefán Árni Geirs­son, leikmaður KR í knatt­spyrnu, hef­ur skrifað und­ir nýj­an samn­ing við fé­lagið út tíma­bilið 2026. 

Hinn 24 ára gamli Stefán er upp­al­inn KR-ing­ur. Hann á að baki 136 meist­ara­flokks­leiki fyr­ir bæði KR og Leikni Reykja­vík.  

Í und­ir­bún­ings­tíma­bil­inu meidd­ist Stefán al­var­lega í leik gegn Vík­ingi en hann bæði fót­brotnaði og fór úr ökklalið. Þykir því ólík­legt að Stefán muni spila með KR á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert