HK sannfærandi á toppinn

Leikmenn HK fagna marki í kvöld.
Leikmenn HK fagna marki í kvöld. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki

HK er komið í topp­sæti 1. deild­ar kvenna eft­ir stór­sig­ur á ÍA, 5:1, í sjöttu um­ferðinni á Akra­nesi í kvöld. 

HK er í topp­sæt­inu með 15 stig en ÍA er í ní­unda og næst­neðsta sæti með fimm stig. 

Loma Mc­Neese skoraði þrennu fyr­ir HK en hin mörk­in skoruðu Ísa­bel Rós Ragn­ars­dótt­ir og Na­talie Wil­son. Mark ÍA skoraði Madi­son Schw­artzen­ber­ger. 

Þá vann Aft­ur­eld­ing sinn fyrsta leik í deild­inni, 1:0, á úti­velli gegn Fylki. 

Aft­ur­eld­ing er með þrjú stig í neðsta sæti en Fylk­ir er með sex í sjötta. Anna Pálína Sig­urðardótt­ir skoraði sig­ur­markið á 19. mín­útu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert