Grindavík/Njarðvík hafði betur gegn KR, 3:1, í sjöttu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í Njarðvík í kvöld.
Grindavík/Njarðvík er komin með 13 stig í öðru sæti deildarinnar en KR er í fjórða sæti með tíu stig.
Brookelynn Entz, Ása Björg Einarsdóttir og Tinna Hrönn Einarsdóttir komu Suðurnesjaliðinu í 3:ö en Maya Camille Neal lagaði stöðuna fyrir KR undir blálok leiks, 3:1.
Þá er Grótta komin í fimmta sæti með níu stig eftir stórsigur á Haukum, 5:1, á Seltjarnarnesi. Haukar eru hins vegar í sjöunda sæti með sex stig.
Rebekka Sif Brynjarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Gróttu en hin mörkin skoruðu María Lovísa Jónasdóttir, Katrín Rut Kvaran og Hulda Ösp Ágústsdóttir. Mark Hauka skoraði Berglind Þrastardóttir.