Knattspyrnumaðurinn Ásgeir Sigurgeirsson hefur skrifað undir nýjan samning við KA sem gildir út tímabilið 2027.
Ásgeir er 28 ára sóknarmaður sem hefur leikið með KA allt frá árinu 2016 þegar hann kom fyrst um sinn að láni frá Stabæk í Noregi og gekk svo alfarið til liðs við Akureyrarfélagið.
Hann er alinn upp hjá Völsungi þar sem hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki í 2. deild sumarið 2011, þá aðeins 14 ára gamall.
Ásgeir er einn leikjahæsti leikmaður í sögu KA með 215 leiki í öllum keppnu, þar sem hann hefur skorað 55 mörk.