Gott gengi FH heldur áfram

Thelma Karen Pálmadóttir skoraði tvö mörk fyrir FH.
Thelma Karen Pálmadóttir skoraði tvö mörk fyrir FH. mbl.is/Hákon

FH vann góðan sig­ur gegn Vík­ingi, 4:1, í Bestu deild kvenna í knatt­spyrnu í Foss­vog­in­um í dag.

FH sit­ur í þriðja sæti deild­ar­inn­ar með 19 stig, jafn­mörg stig og Breiðablik og Þrótt­ur í fyrsta og öðru sæti. Vík­ing­ur er í ní­unda sæti með fjög­ur stig.

Leik­ur­inn fór af stað með lát­um en strax á þriðju mín­útu fékk FH dauðafæri til að taka for­ystu. Bolt­inn datt fyr­ir Ídu Marín Her­manns­dótt­ur al­eina á fjær­stöng­inni eft­ir auka­spyrnu en Sig­ur­borg Katla Svein­björns­dótt­ir markvörður Vík­ings sá við henni.

Í kjöl­farið tók við góður kafli Vík­inga sem pressuðu FH vel. Freyja Stef­áns­dótt­ir fékk gott færi eft­ir stungu­send­ingu frá Þór­dísi Hrönn Sig­fús­dótt­ur en Sandra Sig­urðardótt­ir í marki FH varði vel.

Þrátt fyr­ir góða byrj­un Vík­inga náði FH for­yst­unni á 23. mín­útu. Horn­spyrna Elísu Lönu Sig­ur­jóns­dótt­ur rataði á varn­ar­mann­inn Deju Sandoval á nær­stöng­inni sem skallaði bolt­ann í netið.

Aðeins sjö mín­út­um síðar tvö­faldaði Thelma Kar­en Pálma­dótt­ir for­yst­una fyr­ir FH með glæsi­legu marki. Maya kom bolt­an­um á Thelmu á hægri kanti sem keyrði að marki Vík­inga og skoraði úr þröngri stöðu með góðu skoti, stöng­in inn.

Vík­ing­ur komst ná­lægt því að minnka mun­inn rétt fyr­ir hálfleik en Sandra varði vel frá Ísfold Marý Sig­tryggs­dótt­ur.

Staðan var því 2:0 fyr­ir FH í hálfleik.

Síðari hálfleik­ur­inn var afar ró­leg­ur. Vík­ing­ar áttu góða spilakafla en áttu í erfiðleik­um með að finna gluf­ur í þéttri vörn FH.

Á 78. mín­útu skoraði Elísa Lana þriðja mark FH. Hildigunn­ur Ýr Bene­dikts­dótt­ir átti horn­spyrnu út í miðjan teig­inn á Elísu sem lagði bolt­ann í vinstra hornið.

Varamaður­inn Arna Ísold Stef­áns­dótt­ir minnkaði mun­inn fyr­ir Vík­inga á 85. mín­útu. Það kom eft­ir fasta send­ingu fyr­ir markið frá Júlíu Ruth Thasap­hong á Örnu á fjær­stöng­inni sem skoraði í autt markið.

Thelma Kar­en inn­siglaði sig­ur­inn fyr­ir FH í upp­bót­ar­tíma eft­ir góða spila­mennsku. Maya Han­sen átti góða hæl­send­ingu á Thelmu sem skoraði af ör­yggi fram­hjá Kötlu í marki Vík­inga.

Mörk­in urðu ekki fleiri í leikn­um og lok­aniðurstaða því 4:1-sig­ur FH.

Vík­ing­ur R. 1:4 FH opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert