Ægismenn á siglingu - Haukar og Grótta unnu

Ægismenn kampakátir eftir sigurinn á Hetti/Hugin í dag.
Ægismenn kampakátir eftir sigurinn á Hetti/Hugin í dag. Ljósmynd/Ægir

Ægir er kom­inn á topp­inn í 2. deild karla í knatt­spyrnu eft­ir sann­fær­andi sig­ur á Hetti/​Hug­in, 4:1, þegar sjö­unda um­ferð deild­ar­inn­ar var leik­in í dag.

Ægis­menn eru komn­ir með 16 stig eft­ir fimm sig­ur­leiki í röð en Þrótt­ur úr Vog­um með 15, Grótta með 14 og Hauk­ar með 14 stig koma þar á eft­ir.

Dal­vík/​Reyn­ir er með 10 stig, Vík­ing­ur Ó. 9, Kor­mák­ur/​Hvöt 9, KFA 8, Víðir 8, KFG 7, Kári 6 og Hött­ur/​Hug­inn rek­ur lest­ina með aðeins 2 stig.

Stef­an Dabetic, Dimitrije Cokic og Atli Rafn Guðbjarts­son komu Ægi í 3:0 gegn Hetti/​Hug­in, Björg­vin Stefán Pét­urs­son minnkaði mun­inn úr víta­spyrnu en Bjarki Rún­ar Jón­ínu­son inn­siglaði sig­ur Ægis und­ir lok­in, 4:1.

Þrótt­ur úr Vog­um tapaði öðrum leikn­um í röð, nú 2:0 gegn Vík­ingi í Ólafs­vík. Luke Williams og Ingvar Freyr Þor­steins­son skoruðu mörk­in í fyrri hálfleik.

Hauk­ar lögðu Kor­mák/​Hvöt 2:1 á Ásvöll­um. Kost­iantyn Iaros­hen­ko kom Hauk­um yfir, Gor­an Pot­koz­arac jafnaði fyr­ir Hún­vetn­inga en gamla kemp­an Guðjón Pét­ur Lýðsson skoraði sig­ur­mark Hauka á 70. mín­útu.

Eng­in stig á nýja heima­vell­in­um

Grótta gerði góða ferð aust­ur í Nes­kaupstað og vann þar KFA 3:2. Valdi­mar Daði Sæv­ars­son skoraði tvö mark­anna og sig­ur­markið í upp­bót­ar­tíma, og Daði Már Pat­rek­ur Jó­hanns­son skoraði eitt. Marteinn Már Sverris­son og Javier Monterrat skoruðu mörk Aust­f­irðinga sem hafa tapað báðum leikj­um sín­um á nýja heima­vell­in­um í Nes­kaupstað.

Víðis­menn lögðu Dal­vík/​Reyni 1:0 í Garðinum. Allt stefndi í marka­laust jafn­tefli en Daniel Beneitez skorað sig­ur­mark Víðismanna á fjórðu mín­útu í upp­bót­ar­tím­an­um.

KFG skildi Kára eft­ir í fallsæti með sigri í Garðabæ, 3:1. Elv­ar Máni Guðmunds­son, Kristján Ólafs­son og Bóas Heim­is­son skoruðu fyr­ir KFG áður en Mika­el Hrafn Helga­son minnkaði mun­inn fyr­ir Skagastrák­ana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert