Kærastan gerir grín að fjölmiðlum

Damir Muminovic í leik með Breiðabliki á síðasta tímabili.
Damir Muminovic í leik með Breiðabliki á síðasta tímabili. mbl.is/Óttar Geirsson

Katrín Ásbjörns­dótt­ir, leikmaður Breiðabliks og kær­asta knatt­spyrnu­manns­ins Damir Mum­in­ovic, gerði grín að fót­bolta.net sem greindi frá því í gær að Damir væri á leið til Breiðabliks.

Sam­kvæmt fót­bolta.net er Damir aft­ur á leið til Breiðabliks en hann hef­ur leikið með DPMM á Brúnei í vet­ur.

„Það er gam­an þegar blaðamenn vita meira en kon­an og sjálf­ur maður­inn Damir,“ skrif­ar Katrín á sam­fé­lags­miðlin­um X í gær.

Bæði Damir og Katrín urðu Íslands­meist­ar­ar með Breiðabliki á síðustu leiktíð. 

 

 

Katrín Ásbjörnsdóttir.
Katrín Ásbjörns­dótt­ir. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert