Selfoss sendi Fjölni í neðsta sætið

Frosti Brynjólfsson með boltann í leiknum en hann skoraði seinna …
Frosti Brynjólfsson með boltann í leiknum en hann skoraði seinna mark Selfoss. mbl.is/Hákon

Sel­foss vann góðan sig­ur á Fjölni, 2:0, í sjö­undu um­ferð 1. deild­ar karla í knatt­spyrnu í Grafar­vogi í dag. 

Eft­ir leik­inn er Sel­foss kom­inn úr fallsæti og í það tí­unda með sex stig en Fjöln­ir er kom­inn í neðsta sætið með þrjú. 

Aron Lucas Vo­kes og Frosti Brynj­ólfs­son skoruðu mörk Sel­fyss­inga en und­ir blálok leiks fékk Reyn­ir Har­alds­son rautt spjald í liði Fjöln­is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert