Var kallaður glæpamaður

Oumar Diouck í leiknum í gær.
Oumar Diouck í leiknum í gær. mbl.is/Hákon

Um­mæl­in sem ónefnd­ur Þrótt­ari viðhafði um knatt­spyrnu­mann­inn Oum­ar Di­ouck, leik­mann Njarðvík­ur, voru á þá leið að hann væri glæpa­maður.

Fót­bolti.net grein­ir frá. Í sam­tali við miðill­inn hafði Gunn­ar Heiðar Þor­valds­son greint frá því að Þrótt­ar­ar hafi látið ljót um­mæli falla um leik­mann sinn sem væri með öðru­vísi húðlit en þeir flest­ir.

Þrótt­ar­ar voru ekki sátt­ir við hegðun Di­ouck í leikn­um sem lyktaði með 2:2 jafn­tefli og kom til orðaskipta eft­ir leik­inn.

Njarðvík­ing­ar voru þá ósátt­ir við skort á gæslu þegar leik­menn gengu niður til bún­ings­klefa í Laug­ar­daln­um eft­ir leik. Sam­kvæmt sam­tali Fót­bolta.net við Di­ouck, sem er þrítug­ur fram­herji frá Belg­íu, hef­ur Þrótt­ur beðist af­sök­un­ar á því.

Di­ouck hef­ur leikið á Íslandi und­an­far­in fimm ár, fyrst í tvö tíma­bil með KF frá Fjalla­byggð en með Njarðvík frá 2022. Hann hef­ur skorað 63 mörk í 110 deilda­leikj­um fyr­ir fé­lög­in tvö.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert