Þróttur úr Reykjavík og Njarðvík hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna atviks sem varð eftir viðureign liðanna í 1. deild karla í knattspyrnu á mánudagskvöldið.
Oumar Diouck, leikmaður Njarðvíkur, varð þá fyrir munnlegu aðkasti frá stuðningsmanni Þróttar og í kjölfarið féllu hörð orð á milli leikmanna liðanna.
Í yfirlýsingunni segir að eftir leikinn hafi komið til orðaskipta milli áhorfenda Þróttar og leikmanna Njarðvíkur. Félögin harma orðaskiptin og telja þau bæði óþörf og ósæmileg.
Þróttarar biðjast velvirðingar á að gæsla í leikmannagöngunum eftir leik hafi ekki verið fullnægjandi og félagið muni bæta úr því.
Sjá má yfirlýsinguna í heild sinni hér fyrir neðan:
Sameiginleg yfirlýsing knattspyrnudeilda Njarðvíkur og Þróttar R. pic.twitter.com/ZbeaHxYRYz
— Njarðvík, knattspyrnudeild (@fcnjardvik) June 10, 2025