Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í knattspyrnu, ýjar að því að Þróttarar hafi beitt leikmann sinn kynþáttaníði eftir að liðin gerðu jafntefli í toppslag í 1. deildinni á Þróttarvelli í Laugardal í gærkvöldi.
Leiknum lauk 2:2 eftir hörkuleik og sagðist Gunnar Heiðar leiður yfir atvikinu í samtali við Fótbolta.net í leikslok:
„Þetta var leiðinlegt atvik. Þegar við erum á leið niður í klefa þá eru einhverjir aðilar sem segja bara mjög heimska hluti við leikmann minn sem er með öðruvísi húðlit en þeir.
Það myndast eitthvað „kaos“ út úr því náttúrlega þar sem að mínir menn heyrðu þetta margir og þeir eru alls ekki sáttir með að það sé verið að segja einhverja svona hluti á Íslandi og á þessum stað hjá Þrótti.
Auðvitað fóru þeir bara að reyna að aðstoða hann í þessu og reyna að koma einhverri ró á þetta út af því að þetta á bara ekki að gerast í fótbolta hvort sem það sé á Íslandi eða einhvers staðar annars staðar.“