Nadía skaut Val í undanúrslit

Ríkj­andi bikar­meist­ar­ar Vals tryggðu sér í kvöld sæti í undanúr­slit­um bik­ar­keppni kvenna í fót­bolta með sigri á Þrótti í Reykja­vík­urslag á heima­velli sín­um á Hlíðar­enda. Urðu loka­töl­ur 2:1.

Val­ur er annað liðið á eft­ir ÍBV sem trygg­ir sér sætið í undanúr­slit­um. Átta liða úr­slit­un­um lýk­ur á morg­un með leik Þórs/​KA og FH ann­ars veg­ar og Breiðabliks og HK hins veg­ar.

Ragn­heiður Þór­unn Jóns­dótt­ir var ná­lægt því að koma Val yfir á 5. mín­útu er hún átti skalla af stuttu færi eft­ir fyr­ir­gjöf frá Fann­dísi Friðriks­dótt­ur frá vinstri. Mol­lee Swift í marki Þrótt­ar varði hins veg­ar vel.

Sex mín­út­um síðar átti Katie Cous­ins, fyrr­ver­andi leikmaður Vals, skot rétt yfir utan teigs og voru upp­haf­smín­út­urn­ar býsna fjör­leg­ar.

Þróttarinn Þórdís Elva Ágústsdóttir með boltann á Hlíðarenda í kvöld.
Þrótt­ar­inn Þór­dís Elva Ágústs­dótt­ir með bolt­ann á Hlíðar­enda í kvöld. mbl.is/​Eggert

Fyrsta markið kom á 21. mín­útu og það gerði Ragn­heiður með glæsi­legu skoti utan teigs eft­ir send­ingu frá Fann­dísi. Fjór­um mín­út­um síðar átti Jelena Tinna Kujundzic fast­an skalla í stöng­ina og ör­skömmu eft­ir það bjargaði Sæ­unn Björns­dótt­ir á línu frá Fann­dísi hinum meg­in.

Þrótt­ur átti þrjár síðustu til­raun­ir fyrri hálfleiks en um þrjú lang­skot var að ræða. Þór­dís Elva Ágústs­dótt­ir átti tvær þeirra og Sæ­unn Björns­dótt­ir eina.

Þór­dís setti bolt­ann aðeins yfir fyrst og svo rataði bolt­inn beint í fangið á Tinnu Brá Magnús­dótt­ur í marki Vals í seinni tveim­ur til­raun­un­um og var staðan í leik­hléi því 1:0.

Þrótt­ar­ar voru mun lík­legri í upp­hafi seinni hálfleiks og Carol­ine Murray komst í tvígang ná­lægt því að jafna með hættu­leg­um skot­um utan teigs. Fyrst varði Tinna frá henni og síðan setti hún bolt­ann rétt fram­hjá.

Jelena Tinna Kujundzic varnarmaður Þróttar og Berglind Rós Ágústsdóttir miðjumaður …
Jelena Tinna Kujundzic varn­ar­maður Þrótt­ar og Berg­lind Rós Ágústs­dótt­ir miðjumaður Vals eig­ast við á Hlíðar­enda í kvöld. mbl.is/​Eggert

Tinna kom eng­um vörn­um við á 67. mín­útu þegar Freyja Karín Þor­varðardótt­ir jafnaði. Lillý Rut Hlyns­dótt­ir átti þá slaka hrein­un frá marki Vals og Freyja refsaði með glæsi­legu skoti upp í vink­il­inn úr teign­um.

Þór­dís Elva fékk úr­vals­færi til að koma Þrótti yfir á 73. mín­útu en hún skaut fram­hjá af stuttu færi eft­ir að hún vann bolt­ann af Natös­hu Anasi í teign­um.

Þrátt fyr­ir nokkra pressu Þrótt­ara voru það Valskon­ur sem komust í 2:1 á 85. mín­útu þegar Nadía Atla­dótt­ir skoraði úr markteign­um eft­ir glæsi­leg­an und­ir­bún­ing hjá Elísu Viðars­dótt­ur á hægri kant­in­um. Reynd­ist það sig­ur­markið.

Val­ur 2:1 Þrótt­ur R. opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert