Framarinn hugsar sér til hreyfings

Adam Örn Arnarson.
Adam Örn Arnarson. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knatt­spyrnumaður­inn Adam Örn Arn­ars­son gæti yf­ir­gefið her­búðir Fram þegar fé­laga­skipta­glugg­inn verður opnaður í júlí.

Það er fót­bolti.net sem grein­ir frá þessu en Adam, sem er 29 ára gam­all, hef­ur aðeins komið við sögu í tveim­ur leikj­um með Fram í Bestu deild­inni á tíma­bil­inu.

Varn­ar­maður­inn er samn­ings­bund­inn Frömur­um út keppn­is­tíma­bilið 2026 en hann gekk til liðs við fé­lagið fyr­ir keppn­is­tíma­bilið 2023.

Hann er upp­al­inn hjá Breiðbliki en hélt ung­ur að árum út í at­vinnu­mennsku og hef­ur leikið með NEC í Hollandi, Nord­sjæl­land í Dan­mörku, Aalesund í Nor­egi, Gór­nik Za­brze í Póllandi og Trom­sö í Nor­egi á at­vinnu­manna­ferl­in­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert