„Mér líst ágætlega á þetta. Auðvitað hefðum við viljað fá heimaleik en okkur gekk vel á móti þeim síðast þannig að ég er bara spennt fyrir þessu,“ sagði Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH í knattspyrnu, um leik liðsins gegn Þór/KA í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í dag.
Leikurinn fer fram í Boganum á Akureyri og hefst klukkan 17.30.
„Ég býst við hörkuleik eins og er yfirleitt. Ef hann verður inni í Boganum veit ég að þeim mun líða mjög vel þar. Við þurfum að mæta mjög vel undirbúnar. Þetta eru mjög ólík lið en alltaf hörkuleikir þegar við spilum á móti þeim,“ sagði Arna er dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í síðasta mánuði.
Spurð hvort hún hefði heldur viljað sleppa við að spila við Bestu deildar lið sagði Arna: „Nei, nei ekkert endilega. Þór/KA er bara eins fínt og hvert annað lið í þessum drætti. Það er aðallega það að maður vill fá heimaleik.
Sérstaklega þegar það bætist við ferðalag þegar það er spilað frekar þétt. Við þurfum bara að tækla það.“
FH hefur byrjað frábærlega í Bestu deildinni og er þar með 19 stig í þriðja sæti, þremur stigum á eftir toppliði Þróttar.
Stefnir FH alla leið í bikarnum?
„Við hugsum þetta eins og deildarleikina, það er bara einn leikur í einu, en við stefnum á að fara alla leið í þessum bikar. Þetta er rosa stutt leið að titli þannig að það hljóta allir að vera að stefna að því að vinna þennan bikar. FH er alls ekki undanskilið þar.“