„Hann var píndur í jakkafötin“

Þorsteinn Halldórsson var vel klæddur á fréttamannafundinum í dag.
Þorsteinn Halldórsson var vel klæddur á fréttamannafundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þor­steinn Hall­dórs­son, landsliðsþjálf­ari kvenna í knatt­spyrnu, kynnti landsliðshóp kvenna fyr­ir Evr­ópu­mótið í Sviss á blaðamanna­fundi í dag.

Á blaðamanna­fund­in­um var Þor­steinn í flott­um jakka­föt­um en á síðasta Evr­ópu­móti var hann alltaf í íþrótta­föt­um á hliðarlín­unni.

„Ég verð ekki í jakka­föt­um en það verður blanda af íþrótta­föt­um og ein­hverju öðru,“ sagði Þor­steinn létt­ur, aðspurður hvort hann yrði í jakka­föt­um á EM í sum­ar.

„Hann var pínd­ur í jakka­föt­in á þess­um fundi,“ bætti Ómar Smára­son, sam­skipta­stjóri KSÍ, við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert