Nokkur hundleiðinleg símtöl

Þorsteinn Halldórsson.
Þorsteinn Halldórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þor­steinn Hall­dórs­son, landsliðsþjálf­ari kvenna í knatt­spyrnu, valdi 23 manna leik­manna­hóp fyr­ir Evr­ópu­mót kvenna í knatt­spyrnu í Sviss í sum­ar.

„Ég valdi 23 leik­menn eins og venj­an er. Valið var að sjálf­sögðu erfitt sem bet­ur fer, því auðvitað vilj­um við hafa það þannig að við þurf­um að hafa fyr­ir því að velja þenn­an hóp,“ sagði Þor­steinn í byrj­un blaðamanna­fund­ar sem fór fram í höfuðstöðvum Icelanda­ir í Hafnar­f­irði í dag.

Þor­steinn viður­kenndi að hann hafi þurft að taka nokk­ur erfið og hund­leiðin­leg sím­töl áður en hann til­kynnti hóp­inn.

„Ég tók nokk­ur sím­töl sem voru hund­leiðin­leg en mér finnst það eðli­legra. Mér finnst gott að til­kynna leik­mönn­um þetta per­sónu­lega held­ur en að þetta komi beint úr til­kynn­ingu frá okk­ur og þær sjái þetta í fjöl­miðlum,“ sagði Þor­steinn.

Áslaug Munda Gunn­laugs­dótt­ir er í leik­manna­hópi Íslands en hún spilaði ekki í síðasta lands­leikja­glugga vegna meiðsla og út­skrift­ar úr Har­vard-há­skóla.

„Ef þið skoðið leik­manna­hóp­inn þá er einn leikmaður sem hef­ur ekki spilað und­an­farið eins og Áslaug Munda. Nýj­ustu frétt­ir af henni sem ég hef eru að hún verði klár þegar við för­um út þannig ég tek hana með út af því,“ sagði Þor­steinn.

Tel­ur að hún geti styrkt okk­ur

Fram­herj­inn Diljá Ýr Zomers hef­ur verið að glíma við meiðsli í vor og hef­ur ekki leikið með Íslandi síðan í des­em­ber á síðasta ári. Þor­steinn tel­ur hana hafa verið til­búna eft­ir tvo leiki með U23 ára landsliði Íslands.

„Staðan á henni er fín. Hún spilaði með U23 ára liðinu, fyrst spilaði hún hálfleik og síðan 75 mín­út­ur og það gekk bara vel. Hún lít­ur vel út þannig ég ákvað að kalla hana inn.

Hún var mik­il­væg­ur part­ur hjá okk­ur í fyrra og í raun síðustu tvö ár hef­ur hún verið stór part­ur í hópn­um. Hún er lyk­il­leikmaður í sinni stöðu og hef­ur staðið sig vel. Ég taldi að hún gæti styrkt okk­ur og henn­ar spila­mennska í gegn­um tíðina hef­ur verið góð,“ sagði Þor­steinn.

Trú­ir að liðið sé betra

Þetta er annað stór­mótið sem Þor­steinn fer á sem þjálf­ari kvenna­landsliðsins.

Ég trúi því að liðið sé betra. Auðvitað var mik­il reynsla í hópn­um sem fór á EM 2022, það voru yfir 1000 lands­leik­ir á bak­inu þá, ég held að ég sé ekki að fara með neina fleip­ur þar.

Núna erum við kannski í 500 leikj­um en ég held samt sem áður að þessi hóp­ur sem er val­inn núna sé í grunn­inn sami hóp­ur og er bú­inn að vera frá því í fe­brú­ar árið 2023,“ sagði Þor­steinn aðspurður hvort hann teldi að þetta sé betra lið frá síðasta EM árið 2022.

„Ég tel að við höf­um stigið já­kvæð skref fram á við sem lið. Ég hef fulla trú á þess­um hópi, ég er mjög ánægður með þenn­an hóp,” bætti Þor­steinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert