HK vann öruggan sigur á Fjölni, 3:0, í 1. deild karla í knattspyrnu í Kórnum í kvöld.
HK er því komið í annað sæti deildarinnar með 14 stig en Fjölnir situr eftir á botninum með 3 stig og hefur ekki unnið leik.
HK náði undirtökum gegn Fjölni eftir 20 mínútna leik þegar Brynjar Snær Pálsson skoraði eftir góðan undirbúning Tuma Þorvarssonar og Dagur Orri Garðarsson bætti við marki mínútu síðar, einnig eftir sendingu Tuma, og staðan var skyndilega 2:0.
Snorri Þór Stefánsson kom í veg fyrir að HK færi með þriggja marka forskot í leikhléið þegar hann varði vítaspyrnu Dags Orra undir lok fyrri hálfleiks.
Birnir Breki Burknason innsiglaði svo sigur HK á 90. mínútu eftir góða sókn HK og sendingu Brynjars Snæs frá vinstri, 3:0.