Njarðvík hafði betur gegn Þór Akureyri, 2:1, í áttundu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í Njarðvík í dag.
Úrslitin þýða að Njarðvík er í öðru sæti með 16 stig en Þór er í sjöunda sæti með 11 stig.
Eftir markalausan fyrri hálfleik komst Þór yfir á 61. mínútu eftir mark frá Juan Guardia Hermida.
Oumar Diouck jafnaði metin fyrir Njarðvík aðeins tveimur mínútum síðar og á 72. mínútu kom Valdimar Jóhannsson heimamönnum yfir, 2:1.
Viggó Valgeirsson innsiglaði sigur Njarðvíkur á fjórðu mínútu uppbótartímans. Lokaniðurstaðan var því 3:1-sigur heimamanna.