„Við vorum sjálfum okkar verstir í dag,“ sagði Srdjan Tufegdzic þjálfari Vals í samtali við mbl.is eftir tap, 3:2, fyrir Stjörnunni í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld.
„Öll mörk Stjörnunnar koma eftir að við töpum boltanum á slæmum stöðum. Þeir eru góðir í að refsa. Mér fannst við vera með leikinn í okkar höndum í stöðunni 1:1 og það var svekkjandi að fá mark á okkur sem breytti þessu okkur í hag. Við minnkum svo í 3:2 og þá er meðbyrinn okkar en þá fáum við rautt spjald.
Þeir eru sérstaklega góðir í byrjun leikja og við áttum ekki svör. Þeir voru að finna opnanir og þetta var erfiður kafli fyrir okkur. Eftir að þeir komust yfir snerist þetta okkur í hag. Þeir byrjuðu betur í seinni en svo tökum við leikinn aftur yfir. Þeir komust samt í 3:1 sem var erfið staða,“ sagði hann um leikinn.
Bjarni Mark Duffield hjá Val fékk beint rautt spjald tveimur mínútum eftir að Patrick Pedersen minnkaði muninn í 3:2 og það hægði á Valsmönnum.
„Ég hef ekki séð atvikið aftur en okkur á bekknum fannst Örvar hlaupa á Bjarna og henda sér niður. Þeir gerðu það oft í leiknum. Þeir voru að biðja um víti og annað en ég þarf að sjá þetta betur. Ég ræði yfirleitt ekki um dómarana en þeir voru of mikið að henda sér niður og vonandi hætta þeir því í næsta leik.“
Patrick Pedersen skoraði bæði mörk Vals í kvöld. Hann er kominn með ellefu mörk í ellefu leikjum á tímabilinu og 127 mörk í efstu deild. Hann er aðeins fjórum mörkum frá Tryggva Guðmundssyni, markahæsta leikmanni efstu deildar frá upphafi.
„Það er heiður fyrir mig að þjálfa manneskju og leikmann eins og Patrick. Hann gerir allt 100 prósent og þá uppsker maður yfirleitt. Hann er mikill Valsmaður. Ég tek hatt minn ofan fyrir honum,“ sagði Túfa.