Afturelding vann botnslaginn

Elmar Kári Enesson Cogic fagnar fyrra marki sínu í kvöld.
Elmar Kári Enesson Cogic fagnar fyrra marki sínu í kvöld. mbl.is/Ólafur Árdal

Aft­ur­eld­ing vann botnslag­inn í Bestu deild karla í knatt­spyrnu gagn ÍA,4:1, á heima­velli í 11. um­ferð deild­ar­inn­ar í kvöld.

Aft­ur­eld­ing fór upp í sjö­unda sæti með sigr­in­um en ÍA er en á botni deild­ar­inn­ar með níu stig.

Vikt­or Jóns­son kom Skaga­mönn­um yfir á 17. mín­útu þegar Jón Gísli Ey­land Gísla­son vann bolt­ann hátt uppi og sendi bolt­ann á Vikt­or sem var með fullt af plássi rétt fyr­ir utan víta­teig heima­manna, tók eina snert­ingu og þrumaði bolt­an­um í markið, 1:0.

Aft­ur­eld­ing jafnaði met­in á 33. mín­útu en það gerði Elm­ar Kári Ener­son Cogic með sínu fyrsta marki í efstu deild. Aft­ur­eld­ing vann bolt­ann hátt uppi og hann rúllaði á Elm­ar sem lagði bolt­ann fyr­ir sig og negldi hon­um í markið fyr­ir utan teig og staðan 1:1 í hálfleik.

Á 70. mín­útu kom Elm­ar Aft­ur­eld­ingu 2:1 yfir eft­ir að skot hjá Benjam­in Stokke fór í hann, breytti um stefnu og fór í markið.

Stokke skoraði svo þriðja mark heima­manna úr víta­spyrnu á 84. mín­útu eft­ir að Hrann­ar Snær Magnús­son fór niður í teign­um.

Hrann­ar skoraði svo sjálf­ur fjórða mark heima­manna á 90. mín­útu en það kom eft­ir frá­bæra send­ingu milli varn­ar­manna frá Stokke. Hrann­ar tók bolt­ann með sér á teig­inn og setti bolt­ann í markið og leik­ur­inn endaði 4:1.




Lýs­ing upp­fær­ist sjálf­krafa

All­ar lýs­ing­ar í beinni

Aft­ur­eld­ing 4:1 ÍA opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert