Fram sendi FH niður í fallsæti

Kyle McLagan úr Fram og Dagur Örn Fjelsted hjá FH …
Kyle McLagan úr Fram og Dagur Örn Fjelsted hjá FH eigast við í kvöld. mbl.is/Ólafur Árdal

Fram hafði bet­ur gegn FH, 2:0, í 11. um­ferð Bestu deild­ar karla í fót­bolta á heima­velli sín­um í Úlfarsár­dal í kvöld. Fram fór upp í sjötta sætið með sigr­in­um, þar sem liðið er með 15 stig. FH er í ell­efta og næst­neðsta sæti með 11 stig, einu stigi frá ör­uggu sæti.

Fram byrjaði bet­ur og Vuk Osk­ar Dimitrij­evic, sem lék með FH þar til hann skipti yfir til Fram fyr­ir tíma­bilið, skoraði fyrsta markið á 6. mín­útu. Hann lagði þá bolt­ann í netið af stuttu færi eft­ir góða fyr­ir­gjöf frá Ró­berti Hauks­syni.

Hann var aft­ur á ferðinni á 21. mín­útu en þá varði Mat­hi­as Rosenörn vel frá hon­um. Tveim­ur mín­út­um síðar skaut Björn Daní­el Sverris­son rétt fram­hjá úr teign­um hinum meg­in.

Kyle McLag­an komst ná­lægt því að skora glæsi­legt mark á 32. mín­útu en negldi bolt­an­um í stöng­ina af mjög löngu færi. Kjart­an Kári og Sig­urður Bjart­ur Halls­son komust báðir ná­lægt því að jafna. Kjart­an átti góða auka­spyrnu á 25 metra færi sem Vikt­or Freyr Sig­urðsson í marki Fram rétt varði og Sig­urður skallaði fram­hjá úr góðri stöðu.

Mörk­in urðu hins veg­ar ekki fleiri í fyrri hálfleik og Fram fór með 1:0 for­skot til bún­ings­her­bergja.

Liðunum gekk illa að skapa sér færi fram­an af í seinni hálfleik og Fram­ar­ar vörðust til­raun­um FH-inga vel. Flest­ar til­raun­ir FH-inga voru utan teigs og hættu­litl­ar.

Hinum meg­in var Kennie Chopart ná­lægt því að skora annað mark Fram á 70. mín­útu en hann negldi bolt­an­um í stöng­ina við víta­teigs­lín­una eft­ir snögga sókn.

Annað mark Fram kom sjö mín­út­um síðar og það gerði varn­ar­maður­inn Sig­ur­jón Rún­ars­son er hann lagði bolt­ann ör­ugg­lega í markið af stuttu færi eft­ir að Rosenörn varði auka­spyrnu frá Har­aldi Ein­ari Ásgríms­syni.

Kjart­an Kári Hall­dórs­son var ná­lægt því að minnka mun­inn á 84. mín­útu með bylm­ings­skoti utan teigs en Vikt­or varði stór­glæsi­lega í stöng­ina og aft­ur fyr­ir. Nær komst FH ekki og Fram fagnaði sterk­um sigri. 

Lýs­ing upp­fær­ist sjálf­krafa

All­ar lýs­ing­ar í beinni

Fram 2:0 FH opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert