Fram sneri taflinu við gegn Val

Olga Ingibjörg Einarsdóttir úr Fram með boltann í dag.
Olga Ingibjörg Einarsdóttir úr Fram með boltann í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Fram hafði bet­ur gegn Val, 2:1, í 9. um­ferð Bestu deild­ar kvenna í fót­bolta á Hlíðar­enda í dag. Fram er áfram í fimmta sæti en nú með 15 stig eins og Þór/​KA í fjórða. Val­ur er áfram í sjötta sæti með níu stig.

Eft­ir ró­leg­ar fyrstu mín­út­ur áttu Valskon­ur góðan kafla um miðjan fyrri hálfleik. Fann­dís Friðriks­dótt­ir átti tvo fín skot á 17. og 18. mín­útu sem Elaina LaMacchia í marki Fram varði vel og Ragn­heiður Þór­unn Jóns­dótt­ir reyndi einnig á banda­ríska markvörðinn ut­ar­lega í teign­um.

Fram gekk illa að skapa sér færi í fyrri hálfleik en Telma Stein­dórs­dótt­ir setti bolt­ann yfir úr teign­um á 32. mín­útu eft­ir horn. Lily Farkas skaut svo hátt yfir fimm mín­út­um síðar.

Fyrsta markið kom á 39. mín­útu og það gerði Jor­dyn Rhodes fyr­ir Val. Hún fékk þá bolt­ann í teign­um eft­ir fyr­ir­gjöf frá Bryn­dísi Ei­ríks­dótt­ur og skaut í varn­ar­mann og í netið. Tveim­ur mín­út­um síðar átti Fann­dís skot í stöng.

Mörk­in urðu hins veg­ar ekki fleiri fyr­ir hlé og var staðan í leik­hléi 1:0 fyr­ir Val.

Þannig var staðan fram að 54. mín­útu þegar Una Rós Unn­ars­dótt­ir jafnaði með sínu fyrsta marki í efstu deild. Hún fékk þá bolt­ann á vinstri kant­in­um, lék á Rhodes og skoraði úr þröngu færi en bolt­inn fór af Lillý Rut Hlyns­dótt­ur á leiðinni í markið.

Sara Svan­hild­ur Jó­hanns­dótt­ir var ná­lægt því að koma Fram yfir á 64. mín­útu en hún skaut í slá rétt utan teigs á meðan Tinna Brá Magnús­dótt­ir í marki Vals hreyfði sig ekki.

Fram­ar­ar þurftu ekki að bíða lengi eft­ir mark­inu hins veg­ar því mín­útu síðar skoraði Murielle Tiern­an er hún nýtti sér slaka send­ingu til baka frá Kol­brá Unu Krist­ins­dótt­ur og skoraði með föstu skoti við víta­teigs­lín­una.

Framliðið var lík­legra til að bæta við en Val­ur að jafna en mörk­in urðu ekki fleiri og Fram fagnaði sterk­um sigri í Reykja­vík­urslagn­um.

Lýs­ing upp­fær­ist sjálf­krafa

All­ar lýs­ing­ar í beinni

Val­ur 1:2 Fram opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert