„Getum kennt sjálfum okkur um“

Álfhildur Rósa í leik Þróttar og Stjörnunnar í dag.
Álfhildur Rósa í leik Þróttar og Stjörnunnar í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Álf­hild­ur Rósa Kjart­ans­dótt­ir, fyr­irliði Þrótt­ar í Bestu deild kvenna í knatt­spyrnu, seg­ir liðið ekki hafa sýnt sitt rétta and­lit í 2:0 tapi þess gegn Stjörn­unni í Garðabæn­um í dag. 

Í dag tapaði Þrótt­ur fyrsta leik sín­um á tíma­bil­inu, en að níu um­ferðum lokn­um sit­ur liðið í efsta sæti deild­ar­inn­ar með 22 stig. 

„Þetta er ótrú­lega svekkj­andi,“ seg­ir Álf­hild­ur, innt eft­ir fyrstu viðbrögðum sín­um eft­ir leik.

„Mér fannst að við hefðum átt að mæta beitt­ari og betri í þenn­an leik. Þær mættu bara sterk­ari, voru ákveðnari í byrj­un og við get­um kennt sjálf­um okk­ur um þessa frammistöðu.“

Álf­hild­ur seg­ir spila­mennsku liðsins hafa verið langt frá sínu besta í dag þrátt fyr­ir ágæta kafla inn á milli. 

„Mér fannst við al­veg ná góðum spila­köfl­um en við vor­um ekki að kom­ast nógu ná­lægt teign­um. Þær voru að fara hratt á okk­ur og við vor­um kannski frek­ar langt frá mönn­um, sér­stak­lega í seinna mark­inu þar sem þetta voru svo­lítið bara okk­ar mis­tök. 

Við höf­um hingað til verið góðar í að verj­ast og ekki fengið á okk­ur mikið af mörk­um þannig að þetta var ólíkt okk­ur í dag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert