Sigur í Eyjum sendi Blika á toppinn

Tobias Thomsen heldur á Valgeiri Valgeirssyni eftir mark þess fyrrnefnda …
Tobias Thomsen heldur á Valgeiri Valgeirssyni eftir mark þess fyrrnefnda í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Íslands­meist­ar­ar Breiðabliks unnu góðan sig­ur á nýliðum ÍBV, 2:0, í 11. um­ferð Bestu deild­ar karla í knatt­spyrnu á Þór­svelli í Vest­manna­eyj­um í dag.

Blikar eru komn­ir á topp­inn með með 22 stig en ÍBV er í sjötta sæti með 14. 

Ágúst Orri Þor­steins­son kom Breiðabliki yfir með skraut­legu marki á 21. mín­útu leiks­ins. Þá var hann með bolt­ann við endalín­una vinstra meg­in i teign­um og reyndi skot eða send­ingu fyr­ir sem átti viðkomu í Sig­urð Arn­ar Magnús­son og hafnaði í net­inu, 0:1. Markið gæti þó verið skráð sem sjálfs­mark. 

Ágúst Orri Þorsteinsson með boltann í leiknum.
Ágúst Orri Þor­steins­son með bolt­ann í leikn­um. Ljós­mynd/​Sig­fús Gunn­ar

Blikar voru með góð tök á leikn­um eft­ir það og annað mark liðsins kom á 76. mín­útu. Þá sendi Val­geir Val­geirs­son Tobi­as Thomsen í gegn sem skoraði af miklu ör­yggi með glæsi­legri af­greiðslu, 0:2. Frá­bært mark hjá Blik­um en Val­geir gerði mjög vel í und­ir­bún­ingn­um. 

Eyja­menn fengu nán­ast eng­in góð tæki­færi sem eft­ir lifði leiks og unnu Blikar því góðan sig­ur og héldu mark­inu hreinu. 

Breiðablik fær Fram í heim­sókn í næstu um­ferð en ÍBV fær Val í heim­sókn í bik­ar­keppn­inni á miðviku­dag­inn kem­ur. Í deild­inni fær ÍBV næst Aft­ur­eld­ingu í heim­sókn í nýliðaslag. 

Tobias Thomsen kemur Blikum í 2:0.
Tobi­as Thomsen kem­ur Blik­um í 2:0. Ljós­mynd/​Sig­fús Gunn­ar
Lýs­ing upp­fær­ist sjálf­krafa

All­ar lýs­ing­ar í beinni

ÍBV 0:2 Breiðablik opna loka
Augna­blik — sæki gögn...
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert